Skilmálatexti
Skilmálar
Almennt
Seljandi : J.B. ehf kt 410266-0329
Kaupandi : Skráður kaupandi á reikning
Skila- og skiptiréttur
Kaup í vefverslun
Við kaup í vefverslun gildir 14 daga afturköllunarréttur samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga. Fresturinn hefst þegar kaupandi, eða aðili á hans vegum, tekur við vörunni.
Til að nýta afturköllunarrétt skal kaupandi tilkynna ákvörðun sína með skýrum hætti, til dæmis með tölvupósti. Vöru skal skilað innan 14 daga frá því að tilkynning um afturköllun var send.
Vara skal vera ónotuð og í söluhæfu ástandi. Kaupandi ber ábyrgð á vörunni þar til hún hefur borist seljanda. Seljandi mun bera kostnað við endursendingu vörunnar, sem tekur mið af ódýrasta staðlaða afhendingarmáta sem við bjóðum.
Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaup, þegar vara hefur borist seljanda og verið yfirfarin.
Upplýsingar um nýtingu réttar til að falla frá samningi
https://island.is/reglugerdir/nr/0435-2016
Eyðublað:
https://neytendastofa.is/library/Files/Neytendarettarsvid/ey%c3%b0ubla%c3%b0_.docx.
Undanþágur frá afturköllunarrétti
Afturköllunarréttur gildir ekki um sérsmíðaðar eða aðlagaðar vörur, svo sem vörur með áletrun eða stærðarbreytingu.
Kaup í verslun
Við kaup í verslun er veittur 30 daga skiptiréttur sem þjónusta. Skiptiréttur gildir aðeins ef vara er ónotuð og í söluhæfu ástandi.
Skiptiréttur veitir rétt til skipta í aðra vöru eða inneignarnótu. Endurgreiðsla í reiðufé eða á greiðslukort er ekki í boði.
Skiptiréttur gildir ekki um afsláttarvörur, útsöluvörur, rýmingarvörur né sérsmíðaðar vörur.
Afhending vöru
Kaupandi getur sótt vörur í verslun okkar JB úr&skart Kaupvangsstræti 4, 600 Akureyri.
Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti. Frí heimsending á vörum að verðmæti yfir kr 20.000.- nær til allra staða á Íslandi.
Röng vörulýsing/ rangt verð / uppseld / afslættir:
Seljandi undanskilur sig ábyrgð á rangri vörulýsingu og/eða mistökum í vörulýsingu í vefverslun. Vörulýsing er gerð eftir bestu upplýsingum á hverjum tíma og áskilur seljandi sér rétt til að leiðrétta vörulýsingu án fyrirvara.
Seljandi áskilur sér rétt til að rifta kaupum sé rangt verð skráð á vöru í vefverslun, eða kaupandi hefur mátt gera sér ljóst að rangt verð var á vöru.
Sé vara uppseld getur seljandi boðið aðra sambærilega vöru í stað uppseldu vörunnar eða boðið kaupanda endurgreiðslu.
Netverð
Öll verð í netverslun innihalda virðisaukaskatt og eru í íslenskum krónum. Verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun.
Ábyrgðarskilmálar
Framvísa þarf reikningi og/eða ábyrgðarskírteini þegar komið er með bilaða/gallaða vöru til viðgerðar.
Galla skal tilkynna strax og hans verður vart. Hafi verið átt við vöruna af aðilum sem ekki starfa á vegum seljanda fellur ábyrgð hans úr gildi. Leggi viðskiptavinur ekki fram kvörtun innan tveggja ára frá þeim degi er hann veitti söluhlut viðtöku getur hann ekki borið gallann fyrir sig síðar. Þó getur verið að viðskiptavinur geti borið fyrir sig galla í fimm ár frá því að hlutnum var veitt viðtaka en það er aðeins ef hlutnum er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist um söluhluti.
Ábyrgð gildir ekki á rafhlöðum, fyrir utan sólarrafhlöður, og ólum, t.a.m. leðurólum og öðrum ólum úr náttúrulegum efnum, sem hafa takmarkaðan endingartíma.
Ábyrgðin tekur aðeins til verksmiðjugalla sem sannanlega koma fram í vörunni á ábyrgðartímanum. Ábyrgðin felur ekki í sér rétt kaupanda til þess að fá endurgreiddan viðgerðarkostnað sem stafar af rangri notkun eða slæmri meðferð, raka- eða höggskemmdum, slælegu viðhaldi, slysni eða óhöppum, náttúruhamförum o.s.frv.
Bótaskylda seljanda nær ekki til óbeins tjóns.
Að öðru leiti vísast til laga um neytendasamninga nr.16/2016.
https://www.althingi.is/lagas/nuna/2003048.html
Ábyrgð JB úr&skart á vörum fer samkvæmt ákvæðum laga nr.48/2003, um neytendakaup í tilviki neytendakaupa. Samkvæmt 7.gr. laganna telst söluhlutur afhentur þegar neytandi hefur veitt honum viðtöku og áhætta af hlutnum flyst yfir til neytanda þegar söluhlutur hefur verið afhentur, sbr. 1. mgr.14. gr laganna.
Trúnaður
jb.is meðhöndlar persónuupplýsingar kaupanda vegna notkunar á vefsvæðinu jb.is í samræmi við gildandi lög og reglur um meðferð persónuupplýsinga á hverjum tíma.
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.